Í kauphöllinni í New York er skráð heimsmarkaðsverð á hrákaffi, sem hækkar eða lækkar eftir framboði og
eftirspurn.
Innkaup á hrákaffi fara fram í gegnum fyrirtæki sem NK á hlut í, Naf Trading a/s í Danmörku. Pantaðar eru baunir sem NK vill
fá, t.d. frá Brasilíu og fer þá Naf á stúfanna og leitar að tilboðum fyrir okkur hjá útflytjendum í
Brasilíu eða söðuaðilum þeirra í Evrópu. Naf sendir NK tilboð og við veljum úr þeim. Við kaupum yfirleitt
hrákaffið í 20 feta gámum frá upprunalandi, en ef við erum að kaupa tegundir sem lítið selst af, þá kaupum við kaffið á
kaffimörkuðum í Evrópu. Áður en söluaðili fyllir gáminn af kaffinu þá sendir hann okkur prufu af því kaffi sem við
ætlum að kaupa og við brennum prufuna og smökkum. Ef hún stenst okkar kröfur er prufan samþykkt, söluaðilinn fyllir gáminn og sendir af
stað til Íslands.
Þegar gámurinn kemur í hús, tökum við prufu úr kaffinu og berum saman við það sem við samþykktum. Gæðamál eru
ofarleg í okkar huga og áður en farið er að brenna og mala í stórum stíl, tökum við alltaf prufu úr sendingunni og hellum upp
á í kaffistofunni á hverjum morgni. Við verðum því fljótt vör við það ef eitthvað fer úrskeiðis í
framleiðslunni.



