Ilmurinn er indæll...
Kaaber kaffið dregur nafn sitt af Ludvig Kaaber, öðrum stofnanda O. Johnson & Kaaber hf. Hann seldi raunar sinn hlut í fyrirtækinu 1918 en nafni hans er enn haldið á lofti í kaffinu. Í eina tíð voru framleiddar margar tegundir undir Kaabermerkinu en þær eru núna tvær:


- Kaaber - Kólumbíukaffi: Ljúf kólumbíublanda með svolitlum keim frá Kosta Ríka - blanda sem flestir kunna að meta. 450 gr. pokar.
- Ríó kaffi: Þetta gamla góða sem þjóðin þekkir frá fornu fari. 450 gr. pokar.
Ekki er úr vegi að rifja hér upp gamla vísu sem þjóðin sönglaði gjarnan þegar vel lá á henni:
Einatt þegar kaffi á könnu minni er
Kaaber er það heillin, eins og vera ber.
Tíu dropa elskan, ég ekki frá því sný
að ilmurinn er indæll....ilmurinn er indæll
og bragðið eftir því!

